Sérfræðingur í barnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir að ráða sérfræðing í barnalækningum við barnadeild. Um er að ræða 50-100% stöðu sem er laus frá 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Barnadeild SAk er eina barnadeildin á landsbyggðinni. Hún þjónar aðallega íbúum norður- og austurlands frá fæðingu til 18 ára aldurs. Á deildinni er legudeild með nýburaeiningu auk dagdeildar og fjölbreyttrar göngudeildarstarfsemi. Deildin sinnir öllum almennum lyflækningum barna og veikindum nýbura að hágæslustigi.

Nánari upplýsingar veitir Gróa Björk Jóhannesdóttir, yfirlæknir barnalækninga á netfanginu groaj@sak.is 

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI. 

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Þór Leifsson - hl1009@sak.is - 463-0100
Gróa Björk Jóhannesdóttir - groaj@sak.is - 463-0100


FSA Barnalækningar
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka