Sérfræðingur í endurhæfingalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir að ráða sérfræðing í endurhæfingalækningum með möguleika á að vera faglegur yfirlæknir greinarinnar. Einnig kemur til greina að ráða inn sérfræðing með aðra sérfræðimenntun eins og t.d. heimilislækningar, lyflækningar og taugalækningar eða hefur reynslu í eða verulegan áhuga á endurhæfingalækningum. 

Um er að ræða 80-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Leifsson, framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu á netfanginu hl1009@sak.is 

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónusta SAk innan endurhæfingalækninga fer öðru fremur fram á Kristnesspítala. Staðan felur í sér bakvaktaþjónustu á Kristnesspítala og hjúkrunarheimilum Heilsuverndar. 

Starfinu fylgir vaktskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu. Í starfinu felst dagvinna við endurhæfingalækningar á Kristnesspítala auk vaktþjónustu á hjúkrunarheimilum og Kristnesspítala. 

Í starfinu felst einnig ráðgjöf við bráðadeildir SAk. 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Þór Leifsson - hl1009@sak.is - 463-0100
Ragnheiður Halldórsdóttir - ragnhh@sak.is - 463-0100


FSA Endurhæfinga- og öldrunarlækningar
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka