Komdu í lið með okkur!
Við erum alltaf til í að bæta við okkur öflugu og frábæru fólki á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Vilt þú taka þátt í okkar vegferð?
Hér getur þú lagt inn umsókn um tímabundið ráðningarstarf. Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til.
Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur deildarstjóra mannauðsdeildar á netfangið kristjanak@sak.is
M.a. meðhöndlun og skráning hvers konar læknisfræðilegra skýrslna og heilbrigðisgagna í samræmi við gildandi lög, reglur, kröfur og gæðaviðmið. Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi ef á við.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2024
Guðrún Jóhannesdóttir - gudrunj@sak.is - 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir - kristjanak@sak.is - 463-0100
FSA Læknaritaramiðstöð
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri