Hjúkrunarfræðingur - Kristnesspítali - Starfsþróunarári í boði

Laus er til umsóknar 80-100% hjúkrunarfræðings við Kristnesspítala þar sem fara fram endurhæfingar- og öldrunarlækningar Sjúkrahússins á Akureyri. 

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst n.k. eða eftir samkomulagi. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum og unnið er 3. hvoru helgi. 

Næsti yfirmaður er Kristín Margrét Gylfadóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur á Kristnesspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar. 

Starfsþróunarár í boði

Á Kristnesspítala er veitt einstaklingsmeðferð, hópmeðferð og þjónusta á göngudeild. Lögð er áhersla á þekkingu og færni í heilsufarsmati sjúklinga, heilbrigðishvatningu, markmiðssetningu, meðferð, fræðslu og leiðsögn til sjúklinga, aðstandenda og annarra meðferðaraðila. Starfið felur í sér teymisvinnu sem byggir á markvissri samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Þjónustuhópurinn eru einstaklingar 18 ára og eldri. Algengustu vandamál eru stoðkerfisvandamál, langvinnir verkir, gigt, heilaáföll, taugasjúkdómar, mænuskaði, offita og lungnavandamál auk breytinga á heilsufari sem tengjast öldrun. Ennfremur kemur fólk í endurhæfingu eftir langvarandi veikindi eins og t.d. krabbamein. Meðallegutími er 4-6 vikur og tekið er mið af þörfum hvers og eins og árangri endurhæfingar.

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir - kmg0918@sak.is - 830-8646
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Kristnesspítali
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka