Hjúkrunarfræðingur á barnadeild

Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri, starfshlutfall er samkomulag. Einnig kemur til greina að ráða 4. árs hjúkrunarnema. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og eru stöðurnar lausar nú þegar eða eftir samkomulagi.

Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina barnadeild landsins utan höfuðborgarsvæðisins og skiptist í legudeild, dagdeild, göngudeild og vökustofu. Barnadeild sinnir börnum og unglingum frá fæðingu til 18 ára aldurs.

Hefur þú áhuga á barnahjúkrun þá er þetta tækifæri fyrir þig ¿ 

Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og lærdómsríkt.

Næsti yfirmaður er Aðalheiður Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur á barnadeild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Aðalheiður Guðmundsdóttir - ag0908@sak.is - 463-0100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Barnadeild
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka