SUMARSTÖRF 2023 - Læknanemar sem lokið hafa 1., 2. eða 3. námsári

Laus eru til umsóknar sumarstörf við umönnun fyrir nema í læknisfræði sem lokið hafa 1. - 3. námsári. Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann.

Sjúkrahúsið á Akureyri er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur mannauðráðgjafa á netfangið kristjanak@sak.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil, ásamt prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. 

Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út, og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir  lokin námskeið með ECTS einingum. 

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir - kristjanak@sak.is - 463-0100


FSA Starfsmannaþjónusta
Eyrarlandsvegur
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka