SUMARSTÖRF 2023 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 1., 2. eða 3. námsári

Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi á Sjúkrahúsinu á Akureyri. 

Í sumar eru laus til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir nema í hjúkrunarfræði sem lokið hafa 1., 2. eða 3. námsári. Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann.

Sjúkrahúsið á Akureyri er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússin sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Ef einhverjar spurningar endilega sendið tölvupóst á Kristjönu Kristjánsdóttur mannauðráðgjafa á netfangið kristjanak@sak.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. 

Upphafsdagur sem og starfshlutfall er samkomulag. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir - kristjanak@sak.is - 463-0100


FSA Starfsmannaþjónusta
Eyrarlandsvegur
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka