Sumarafleysing - Sjúkraþjálfari/sjúkraþjálfanemi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Vegna sumarafleysinga er laus staða sjúkraþjálfara og/eða sjúkraþjálfanema við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Faglegur yfirmaður er Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfari, forstöðulæknir er Arna Rún Óskarsdóttir. 

Sjúkraþjálfarar við SAk starfa á tveimur starfsstöðvum, á bráðadeildum sjúkrahússins við Eyrarlandsveg og á Kristnesspítala þar sem fram fara endurhæfinga- og öldrunarlækningar. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst almenn vinna sjúkraþjálfara í þverfaglegu umhverfi. Um fjölbreytt starf er að ræða, áhersla er lögð á góða þjónustu við skjólstæðinga, þverfaglegt samstarf og faglega þróun sjúkraþjálfunar. Verkefni og ábyrgð í starfi eru í samræmi við reynslu og/eða hversu langt umsækjandi er kominn í námi.

Staðan sem um ræðir er við bráðadeildir en þó með þeim fyrirvara að hana getur þurft að flytja milli starfsstöðva. Verkleg kennsla nema í sjúkraþjálfun fer fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða dagvinnu og einstaka vakt um helgar ef reynsla er fyrir hendi. 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 04.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Lucienne ten Hoeve - lucienne@sak.is - 860-0547
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Sjúkraþjálfun
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka