Sérfræðingur í endurhæfinga- eða öldrunarlækningum

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í endurhæfinga- eða öldrunarlækningum. Einnig kemur til greina að ráða sérfræðing í heimilislækningum með reynslu af ofangreindu. Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. 

Næsti yfirmaður er forstöðulæknir endurhæfinga- og öldrunarlækninga, Arna Rún Óskarsdóttir.

Á Kristnesspítala er unnið í þverfaglegum teymum meðferðaraðila í samvinnu við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Í teymunum starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafi, sjúkraliðar og aðstoðarfólk. Einnig koma inní teymin talmeinafræðingur og sálfræðingur þegar við á. 

Samvinna við þjónustuaðila utan stofnunarinnar er mikilvægur þáttur í starfinu. Má þar nefna heilsugæslu og þá sérstaklega heimahjúkrun, ýmis úrræði á vegum Akureyrarbæjar auk Virk starfsendurhæfingarsjóðs. Göngudeild endurhæfingalækninga er starfrækt á kristnesspítala. Læknar innan endurhæfinga- og öldrunarlækninga sinna læknisþjónustu á dagvinnutíma á hjúkrunarheimilum Heilsuverndar á Akureyri og sinna þar vaktþjónustu ásamt á Kristnesspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónusta SAk innan endurhæfingalækninga fer öðru fremur fram á Kristnesspítala. Öldrunalæknisþjónusta SAk er veitt á Kristnesspítala, öðrum legudeildum sjúkrahússins og á göngudeild auk hjúkrunarheimila Heilsuverndar. Staðan felur í sér bakvaktaþjónustu Kristnesspítala og hjúkrunarheimilum Heilsuverndar. 

Starfinu fylgir: 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af stjórnunarstörfum ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa eftir því sem við á. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim ásamt innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega vottun á starfsemi sinni.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 18.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Arna Rún Óskarsdóttir - arnao@sak.is - 463-0100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Endurhæfinga- og öldrunarlækningar
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka