Sumarafleysingar bráðamóttaka - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar

Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarnema á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. 

Næsti yfirmaður er Kristín Ragnarsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur bráðamóttöku.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Starfshlutfall er 70 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Ósk Ragnarsdóttir - kristinr@sak.is - 463-0100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Bráðamóttaka
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka