Sumarafleysingar fæðingadeild - Ljósmæður

Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsókna 60-100 % stöður ljósmæðra við fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri. 

Næsti yfirmaður er Ingibjörg Hanna Jónsdóttir forstöðuljóðmóðir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum ljósmæðra samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur

Umsækjandi skal hafa fullgilt próf og starfsleyfi. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Starfshlutfall er 60 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Hanna Jónsdóttir - inda@sak.is - 4630100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 4630100


FSA Fæðingadeild
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka