Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða/sjúkraliðanema við lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur lyflækningdeildar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 70 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Þóra Ester Bragadóttir - thorae@sak.is - 4630171
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 4630100
FSA Lyflækningadeild
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri