Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku

Lausar eru til umsóknar tvær 80-94% stöður hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum og eru stöðurnar lausar nú þegar eða eftir samkomulagi.  

Á bráðamóttöku fer fram fjölbreytt starfsemi en meginverkefni deildarinnar er móttaka bráðveikra og slasaðra en annar stór hluti starfseminnar felst í að sinna þeim sjúklingum sem koma í endurkomu/eftirlit vegna áverka sinna eða veikinda.

Næsti yfirmaður er Kristín Ósk Ragnarsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í störfunum felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum og unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar. 

Fjölbreytt og gefandi verkefni í góðum starfsanda þar sem boðið er upp á góða handleiðslu. Lögð er áhersla á hæfileika í samskiptum og samvinnu. 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. regnla nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum

Starfshlutfall er 80 - 94 %
Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2022

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Ósk Ragnarsdóttir - kristinr@sak.is - 463-0100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Bráðamóttaka
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka