Sjúkraþjálfari óskast til starfa við bráðadeildir Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs og er starfshlutfall og upphaf starfs eftir samkomulagi.
Faglegur yfirmaður er Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfari og forstöðulæknir er Arna Rún Óskarsdóttir.
Sjúkraþjálfarar við SAk starfa á tveimur starfsstöðvum, á bráðadeildum sjúkrahússins við Eyrarlandsveg og á Kristnesspítala þar sem fram fara endurhæfinga- og öldrunarlækningar.
Staðan sem um ræðir er við bráðadeildir en þó með þeim fyrirvara að hana getur þurft að flytja milli starfsstöðva. Um er að ræða dagvinnu og einstaka vakt um helgar. Verkefni og ábyrgð eru í samræmi við reynslu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2022
Lucienne ten Hoeve - lucienne@sak.is - 463-0100
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100
FSA Sjúkraþjálfun
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri