Sumarafleysing á almennri göngudeild - Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi

Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings og/eða hjúkrunarfræðinema (skulu helst hafa lokið 3 árum í hjúkrun) við almennu göngudeildina á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða dagvinnu og felur starfið í sér almenn hjúkrunarstörf við móttöku dagsjúklinga, meltingarspeglun og heimahlynningu.

Næsti yfirmaður er Inga Margrét Skúladóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur almennu göngudeildarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is

Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2022

Nánari upplýsingar veitir

Inga Margrét Skúladóttir - inga@sak.is - 463-0221
Erla Björnsdóttir - erlab@sak.is - 463-0100


FSA Almenn göngudeild
v/Eyrarlandsveg
603 Akureyri


Sækja um starf Til baka