Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á barnadeild

Lausar eru til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga við barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri, starfshlutfall er samkomulag. Einnig kemur til greina að ráða 4. árs hjúkrunarnema. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og eru stöðurnar lausar frá 01.09.2022 eða eftir samkomulagi. Bæði er um að ræða fasta stöðu og afleysingu til september 2023.

Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina barnadeild landsins utan höfuðborgarsvæðisins og skiptist í legudeild, dagdeild, göngudeild og vökustofu. Barnadeild sinnir börnum og unglingum frá fæðingu til 18 ára aldurs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.  

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. 

Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2022

Nánari upplýsingar veitir

Aðalheiður Guðmundsdóttir - ag0908@sak.is - 463-0100
Elma Rún Ingvarsdóttir - elmari@sak.is - 463-0100


FSA Barnadeild
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka