Viltu vera á skrá geislafræðingur

Ekki er verið að auglýsa ákveðið starf en hér gefst kostur á að senda inn umsókn um starf, þ.e. vera á skrá.
Umsækjendum verður ekki svarað sérstaklega en ráðningaraðilar munu hafa samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum geislafræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur

Umsækjandi skal hafa fullgilt próf og starfsleyfi. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og starfsferil.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2020

Nánari upplýsingar veitir

Elvar Örn Birgisson - elvar@sak.is - 843-5923


FSA Myndgreiningardeild
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Sækja um starf Til baka