Við leitum að fólki til starfa við aðhlynningu á hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Um mismunandi vaktir og starfshlutfall er að ræða.
Gefandi og skemmtilegt starf sem hentar fólki á öllum aldri og öllum kynjum.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.
Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2024
Auður Helga Ólafsdóttir, Deildarstjóri - audur.olafsdottir@hvest.is - 692 3580
HVEST Hjúkrunardeild Bolungarvík
Miðstræti
415 Bolungarvík