Sjálfstæður og jákvæður einstaklingur óskast til að sinna 100% starfi í fjármáladeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði. Starfsmaðurinn verður hluti af öflugu teymi sem starfar í nánu samstarfi við aðrar deildir.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2024
Elísabet Samúelsdóttir, Framkvæmdastjóri fjármála - elisabet.samuelsdottir@hvest.is - 4504500
Hanna Þóra Hauksdóttir, Mannauðsstjóri - hanna.hauksdottir@hvest.is - 4504500
HVEST Skrifstofa
Torfnesi
400 Ísafjörður