Starfsmaður óskast í starf virkniþjálfa á Patreksfirði

Við óskum eftir að ráða starfsmann í 30 - 50% starf virkniþjálfa á legudeild á Patreksfirði. Starfið er fjölbreytt og mótast að einhverju leyti af þeim sem ráðinn verður í starfið. Hér gefst kjörið tækifæri til að vinna með skemmtilegu fólki og verða hluti af öflugri liðsheild. 

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum, þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna við að virkja og aðstoða skjólstæðinga við tómstundir, hreyfingu og afþreyingu. 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum. 

Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 30 - 50 %
Umsóknarfrestur er til og með 29.08.2022

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Sigurðardóttir, Deildarstjóri - liljasi@hvest.is - 865-0461


HVEST Legudeild Patreksfirði
Stekkum 1
450 Patreksfjörður


Sækja um starf Til baka