Hjúkrunarfræðingur á bráða- og legudeild á Ísafirði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða hjúkrunarfræðinga í 70-100% starf frá 1. ágúst 2019, eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða almenn störf hjúkrunarfræðings á blandaðri akút legudeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma.

Hæfnikröfur

-Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
-Góð hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2019.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða www.hvest.is

Möguleiki er á að stofnunin aðstoði við öflun íbúðarhúsnæðis og flutning til Ísafjarðar.

Frekari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir, aðstoðardeildarstjóri í síma 450 4500 og á netfanginu thorunn@hvest.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Hér er hægt að sækja um starfið

Starfshlutfall er 70 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2019

Nánari upplýsingar veitir

Þórunn Pálsdóttir - thorunn@hvest.is - 4504500


HVEST Bráðadeild
Torfnesi
400 Ísafjörður


Sækja um starf Til baka