Aðstoðarmaður við hjúkrun - Vopnafjörður - Hjúkrunarheimilið Sundabúð

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í umönnun á Hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafiði. Starfshlutfall er 85% eða skv. samkomulagi. Starfið er laust frá 1/9 og er tímabundið til eins árs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunarheimili. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun. 

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 85 %
Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Emma Tryggvadóttir - emma.tryggvadottir@hsa.is
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - magnfridur.o.petursdottir@hsa.is


HSA Vopnafj. Sundabúð
Laxatúni
690 Vopnafjörður


Sækja um starf Til baka