Aðstoðarmaður við hjúkrun - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir

HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunarheimilið Uppsali á Fáskrúðsfirði. Starfshlutfall er 50-100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og er staðan laus nú þegar. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og tilfallandi störf. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun. 

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 14.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Nína Hrönn Gunnarsdóttir - nina.h.gunnarsdottir@hsa.is
Sigurveig Gísladóttir - sigurveig.gisladottir@hsa.is


HSA Fjarðabyggð Uppsalir
Hlíðargötu 62
750 Fáskrúðsfjörður


Sækja um starf Til baka