Geislafræðingur - Egilsstaðir - Heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða geislafræðing í afleysingu frá 1. maí 2024 - 31. ágúst 2025 á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna við þjónusturannsóknir á sviði myndgreininga. Sérhæfð verkefni, eftir atvikum, sem heyra undir starfsemi deildarinnar. Vinna við RIS, PACS og Sögu kerfið. Stuðla að góðri þjónustu. Unnið er á dagvöktum á Egilsstöðum og þátttaka í bakvöktum er í samráði við Umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað.

Hæfnikröfur

Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á faglegan metnað, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 14.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sonja Rut Rögnvaldsdóttir - sonja.r.rognvaldsdottir@hsa.is
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - magnfridur.o.petursdottir@hsa.is


HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka