Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild - Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað - SUMARAFLEYSING 2024

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í sumarafleysinguafleysingu á Endurhæfingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Um er að ræða 80-100% stöðugildi eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf við sjúkraþjálfun á endurhæfingardeild.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Jóna Lind Sævarsdóttir - jona.l.saevarsdottir@hsa.is
Borghildur F. Kristjánsdóttir - borghildur.f.kristjansdottir@hsa.is


HSA Nesk. Endurhæfing
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka