Aðstoðarmatráður í eldhúsi - Egilsstaðir - AFLEYSING

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneytiseldhús HSA á Egilsstöðum í afleysingastöðu. Unnið er á virkum dögum og aðra hverja helgi í dagvinnu. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. maí - 31. desember 2024, mögulega lengur. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða matseld fyrir Hjúkrunarheimilið Dyngju, heilsugæsluna á Egilsstöðum og umsjón með vöktum ásamt fleiru.

Hæfnikröfur

Viðkomandi þarf að hafa reynslu af matseld og geta unnið sjálfstætt. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi áskilin. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - magnfridur.o.petursdottir@hsa.is - 470-3029
Vilmundína L Kristjánsdóttir - vilmundina.l.kristjansdottir@hsa.is - 470-3000


HSA Egilsst. Eldhús
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka