Sjúkraliði - Fjarðabyggð - Heimahjúkrun - SUMARAFLEYSING 2024

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar í heimahjúkrun við heilsugæslu Fjarðabyggðar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn störf sjúkraliða á heilsugæslu/í heimahjúkrun.

Hæfnikröfur

Sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Gild almenn ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 03.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Pétursdóttir - gudrun.petursdottir@hsa.is - 470-1428 & 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina.g.oskarsdottir@hsa.is - 470-3081 & 865-5737


HSA Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður


Sækja um starf Til baka