Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga eða hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingar á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Almenn hjúkrunarfræðingsstörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Verkefnin eru afar fjölbreytt og því kjörið tækifæri til að ná sér í góða reynslu.
Íslenskt hjúkrunarleyfi eða staðfesting á námi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 14.05.2024
Birgitta Inga J. Hauksdóttir - birgitta.hauksdottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir - sigridur@hsa.is
HSA Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður