Hjúkrunarfræðingur - Djúpivogur - Heilsugæsla - Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingu við heilsugæslustöð HSA Djúpavogi sem er hluti af heilsugæslunni í Fjarðabyggð. Um er að ræða afleysingu til eins árs og staðan veitist frá 1. ágúst eða fyrr. Starfshlutfall er 40 - 80% eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn móttaka á heilsugæslustöð, s.s. skiptistofa,  ung- og smábarnavernd, heilusvernd skólabarna ásamt rafrænni heilbrigðisþjónustu. 

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Kostur er að viðkomandi hafi reynslu í heilsugæsluhjúkrun, ljósmóðurmenntun eða heilsugæslusérnám. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 70 - 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2023

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Pétursdóttir - gudrun.petursdottir@hsa.is
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina.g.oskarsdottir@hsa.is


HSA Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður


Sækja um starf Til baka