Starfsmaður í þjónustudeild - Egilsstaðir - ræsting og/eða þvottahús - SUMARAFLEYSINGAR 2023

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá þjónustudeild HSA á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 14.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - magnfridur.o.petursdottir@hsa.is - 470-3029
Þórarna Gró Friðjónsdóttir - thorarna.g.fridjonsdottir@hsa.is - 470-3053


HSA Egilsst. Sjúkrah. Ræsting
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka