Iðjuþjálfi - Egilsstaðir - Endurhæfingardeild - Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í afleysingu frá 1. ágúst við Endurhæfingardeild HSA á Egilsstöðum. Starfið er fjölbreytt og sveigjanlegt. Um er að ræða 100% starfshlutfall eða minna skv. nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn iðjuþjálfastörf fyrir einstaklinga og hópa. Fagleg ábyrgð hvað varðar undirbúning, framkvæmd og skráningu íhlutunar. Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlanir fyrir skjólstæðinga á ólíkum aldri og miðlar nauðsynlegum upplýsingum til annarra. Stuðlar að og viðheldur sjálfstæði skjólstæðinga og eflir þá til sjálfshjálpar.

Hæfnikröfur

Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 08.08.2023

Nánari upplýsingar veitir

Sverrir Rafn Reynisson - sverrir.r.reynisson@hsa.is
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - magnfridur.o.petursdottir@hsa.is


HSA Egilsst. Sjúkrah. Sjúkraþjálfun
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka