Fjölskylduráðgjafi - Heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða fjölskylduráðgjafa á heilsugæslusvið. Unnið er í dagvinnu þvert á starfsstöðvar HSA og er starfshlutfall 80-100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðtöl í Heilsugæslu HSA og vinna í þverfaglegu teymi. Ráðgjöf og fræðsla við fólk sem hefur sálfélagslegan vanda og veita skjólstæðingum stuðning, ráðgjöf og viðeigandi fræðslu . Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni. Samvinna við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu og skóla.

Hæfnikröfur

Heilbrigðis- eða félagsvísinda menntun s.s. á sviði hjúkrunar- félagsráðgjafar- iðjuþjálfunar, þroskaþjálfunar eða öðru sem nýtist í starfi. Ráðgjafamenntun með áherslu á fjölskylduráðgjöf. Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu. Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf. Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi. Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun. Góð almenn tölvukunnátta. Íslenskukunnátta nauðsynleg. Ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 22.12.2022

Nánari upplýsingar veitir

Sigurlín Hrund Kjartansdóttir - sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is


HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka