Sálfræðingur - Heilsugæsla - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sálfræðing til að sinna fyrsta stigs þjónustu á heilsugæslu stofnunarinnar. Um er að ræða 100% starf sálfræðings innan heilsugæslu HSA. Staðan er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhaldi ef vel tekst til og veitist frá 1. febrúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Óskað er eftir sálfræðingi í heilsugæslu HSA til að veita almenna sálfræðiþjónustu við meðgöngu- og foreldravernd, einnig að hluta til við opna móttöku fyrir ungmenni og fullorðna sem gíma við sálræna erfiðleika eða áföll. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af því að greina og meðhöndla þunglyndi og kvíða. Reynsla af forvarnar, áfalla og sorgarvinnu er kostur.  Innan starfs fellur forvarnarvinna, greining á tilfinningavanda, þátttaka í hugrænni hópmeðferð og þátttaka í skipulagningu og þróun sálfræðiþjónustu í opinni móttöku á Austurlandi í samvinnu við yfirsálfræðing, yfirlækni geðheilbrigðisþjónustu, framkvæmdastjóra hjúkrunar, framkvæmdastjóra lækninga og forstjóra. Helstu verkefni: Forvarnir, greining á tilfinningavanda, viðtöl, hópmeðferð og þátttaka í stefnumótun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Austurlandi.

Hæfnikröfur

Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi. Reynsla af klínísku starfi æskileg. Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð. Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg. Samskiptahæfni og sveigjanleiki. Ökuréttindi og færni til að keyra beinskipta bíla. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Lögð er áhersla á faglegan metnað, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 19.01.2023

Nánari upplýsingar veitir

Sigurlín Hrund Kjartansdóttir - sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is - 862-2793
Pétur Heimisson - petur.heimisson@hsa.is - 470-3052


HSA Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka