Starfsmaður í þjónustudeild - Fjarðabyggð - Hjúkrunarheimilið Uppsalir

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í ræstingu/þvottahús hjúkrunarheimilisins Uppsala í Fjarðabyggð. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða vinnu í ræstingu/þvottahúsi hjúkrunarheimilisins Uppsala. 

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 17.01.2023

Nánari upplýsingar veitir

Elín Hjaltalín Jóhannesdóttir - elin.hjaltalin@hsa.is - 659-1959
Margrét Helga Ívarsdóttir - margret.h.ivarsdottir@hsa.is -


HSA Fjarðabyggð Uppsalir
Hlíðargötu 62
750 Fáskrúðsfjörður


Sækja um starf Til baka