Aðstoðarmaður við hjúkrun/Sjúkaliðanemi - Neskaupstaður - Umdæmissjúkrahús Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun/sjúkraliðanema á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 - 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna. Gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn aðhlynning og tilfallandi störf á sjúkradeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Reynsla af aðhlynningu er kostur. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 22.12.2022

Nánari upplýsingar veitir

Þórhalla Ágústsdóttir - thorhalla.agustsdottir@hsa.is - 470-1453
Sigríður Kristinsdóttir - sigridur.kristinsdottir@hsa.is - 471-1453 / 864-0239


HSA Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka