Hjúkrunarfræðingur/nemi - Seyðisfjörður - Hjúkrunarheimilið Fossahlíð - Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema í afleysingu í sumar með möguleika á framtíðarstarfi á Hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Staðan er laust strax.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn störf hjúkrunarfræðings á deildinni.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi eða staðfesting á námi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Guðveig Sigurðardóttir - kristin.g.sigurdardottir@hsa.is
Stefanía Stefánsdóttir - stefania.stefansdottir@hsa.is


HSA Seyðisfj. Fossahlíð
Suðurgata 8
710 Seyðisfjörður


Sækja um starf Til baka