Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á hjúkrunarheimilið Uppsali Fáskrúðsfirði. Unnið er á vöktum með bakvaktabyrði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Almenn störf hjúkrunarfræðings á hjúkrunarheimilinu.
Íslenskt hjúkrunarleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Elín Hjaltalín Jóhannesdóttir - elin.h.johannesdottir@hsa.is
HSA Fjarðabyggð Uppsalir
Hlíðargötu 62
750 Fáskrúðsfjörður