Starfsmaður í þjónustudeild - Neskaupstaður - ræstingar/þvottahús - SUMARAFLEYSING 2022

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í ræstingum og/eða þvottahúsi hjá þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna við ræstingar og/eða í þvottahúsi í þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 05.07.2022

Nánari upplýsingar veitir

Borghildur F. Kristjánsdóttir - borghildur.f.kristjansdottir@hsa.is - 470-1482 / 868-8725


HSA Nesk. Sjúkrah. Ræsting
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka