Sjúkraliði - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á Hjúkrunarheimilið Dyngju í framtíðarstarf. Starfshlutfall er 80-100% eða skv. nánara samkomulagi. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna sjúkraliða á hjúkrunarheimili. Sjúkraliðar vinna með breiðum hópi skjólstæðinga. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjúkraliða sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í hjúkrun. 

Hæfnikröfur

Íslensk sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.07.2022

Nánari upplýsingar veitir

Bríet Magnúsdóttir - briet.magnusdottir@hsa.is - 470-3040
Soffía Sigríður Jónasdóttir - soffia.s.jonasdottir@hsa.is - 470-3040


HSA Egilsst. Dyngja
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka