Aðstoðarmaður við hjúkrun - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir

HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunarheimilið Uppsali á Fáskrúðsfirði. Starfshlutfall er 95% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og tilfallandi störf. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun. 

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90 - 95 %
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022

Nánari upplýsingar veitir

Elín Hjaltalín Jóhannesdóttir - elin.h.johannesdottir@hsa.is - 659-1959


HSA Fjarðabyggð Uppsalir
Hlíðargötu 62
750 Fáskrúðsfjörður


Sækja um starf Til baka