Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 - 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
 

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf hjúkrunarfræðinga á sjúkradeildinni eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum hópi skjólstæðinga. Unninn eru almenn hjúkrunarfræðingsstörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun. 

Hæfnikröfur

Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 10.12.2021

Nánari upplýsingar veitir

Þórhalla Ágústsdóttir - thorhalla.agustsdottir@hsa.is - 470-1453 & 891-9419
Sigríður Kristinsdóttir - sigridur.kristinsdottir@hsa.is - 470-1450 & 864-0239


HSA Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka