Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða Skurðhjúkrunarfræðing á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands. Starfshlutfall er 89% og um er að ræða dagvinnu auk bakvakta.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur á skurðstofu sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á. 

Hæfnikröfur

Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Sérmenntun í skurðhjúkrun skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Skilyrði að hafa gilt ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 21.06.2021

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Sigurðardóttir - hronns@hsa.is - 470-1450


HSA Neskst. Sjúkrah. Skurðstofa
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka