Aðstoðarmatráður - Eskifjörður - Hjúkrunarheimilið Hulduhlíð - afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneyti hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar á Eskifirði. Starfshlutfall er 70% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan veitist frá og með 1. ágúst 2021 og í eitt ár. Vaktavinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða matseld fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins.

Hæfnikröfur

Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á sviði matseldar s.s. matartækninám. 

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi og skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Fjarðabyggðar hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 70 %
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2021

Nánari upplýsingar veitir

Harpa Ósk Rafnsdóttir - harparafnsdottir@hotmail.com - 868-8486
Emil Sigurjónsson - emils@hsa.is - 470-3053 / 895-2488


HSA Fjarðabyggð Hulduhlíð
Dalbraut 1
735 Eskifjörður


Sækja um starf Til baka