Erum við að leita að þér?
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir fólki með reynslu af umönnunarstörfum í sumarafleysingar til skemmri eða lengri tíma. Getum aðstoðað við að útvega húsnæði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
HSA rekur 5 hjúkrunarheimili á Austurlandi, á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og í Neskaupstað.
Kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og aðra reynslubolta í ummönnun að skoða perlur Austurlands, njóta annálaðar veðurblíðu eða heilsa uppá vini/ættingja fyrir austan í sumar.
Aðstoð við hjúkrun og alla þætti daglegs lífs íbúa heimilisins.
Áhugi á fólki, jákvæðni, vilji til að læra og reyna nýja hluti og góð samskiptafærni. Lágmarskaldur er 18 ár.
Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 09.07.2021
Arney Eir Einarsdóttir - arneyeir@hsa.is - 470-3040
Jóna Björt Friðriksdóttir - jonabf@hsa.is - 470-3028
HSA Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir