Öll störf - Seyðisfjörður

Hér er einungis hægt að sækja um að vera á skrá ef störf losna, en EKKI auglýst störf - sækja þarf um auglýst störf sérstaklega. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega, en haft verður samband við umsækjendur eftir því sem tilefni er til. VINSAMLEGA SKRÁIÐ ÓSKIR VARÐANDI STARF OG STAÐSETNINGU Í UMSÓKNINA. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf innan HSA eru til dæmis: Geislafræðingur Hjúkrunarfræðingur Iðjuþjálfi Lífeindafræðingur Lyfjatæknir Læknaritari Læknir Móttökuritari Sjúkraliði Sjúkraþjálfari Skrifstofustörf Starfsmaður í aðhlynningu Starfsmaður í þjónustudeild (eldhús/ræsting(þvottahús)

Hæfnikröfur

Réttindi sbr. viðkomandi starf. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Laun eru greidd skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og stofnanasamningi HSA.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 1 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2022

Nánari upplýsingar veitir

Þórarna Gró Friðjónsdóttir - thorarna.g.fridjonsdottir@hsa.is - 470-3053
Stefanía Stefánsdóttir - stefania.stefansdottir@hsa.is - 470-3058 & 8465037


HSA Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka