Hjúkrunarfræðingur - Fjarðabyggð - heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingar í heilsugæslu Fjarðabyggðar.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna hjúkrunarfræðings í heilsugæslu.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2020

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Pétursdóttir - gudrunp@hsa.is - 470-1422 & 618-1904
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður


Sækja um starf Til baka