Móttökuritari - Egilsstaðir - heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara á Heilsugæsluna á Egilsstöðum.

Starfshlutfall er 80%, frá og með 1. febrúar 2020.

Helstu verkefni og ábyrgð

Símsvörun, vinna með afgreiðslukerfi við móttöku. Er ábyrgur fyrir gjaldtöku, innheimtu og skilum á daglegu uppgjöri til bókhaldsdeildar ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Hæfnikröfur

Gerð er krafa um stúdentspróf, þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, gild almenn ökuréttindi, kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir

Þórarna Gró Friðjónsdóttir - thorarna@hsa.is - 470-3028 & 849-1455
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka