Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild HSA - Neskaupstað

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara á Endurhæfingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Um er að ræða 80-100% stöðugildi eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er laust frá og með 1. desember eða skv. nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf við sjúkraþjálfun á endurhæfingardeild.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir

Anna Þóra Árnadóttir - annathora@hsa.is - 470-1470 & 866-1086
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-1450 & 895-2488


HSA Nesk. Endurhæfing
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka