Geislafræðingur

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða geislafræðing til starfa við myndgreiningardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands/HSA Neskaupstað. Starfshlutfall er 60% eða skv. samkomulagi, dagvinna með bakvöktum. Staðan er laus frá og með 1. desember eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Geislafræðingur vinnur dagleg störf á myndgreiningardeild sjúkrahússins. Á myndgreiningarsviði sjúkrahússins er eitt fast röntgentæki (CR myndplötukerfi), nýlegt 16 sn. sneiðmyndatæki (CT), móbíll og C-bogi.

Hæfnikröfur

Almenn þekking á meðferð á röntgentækjum.
Hafa þekkingu til að nota sneiðmyndatæki (CT) móbíll og C-bogi.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta er áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 60 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir

Hallgrímur Axel Tulinius - hat1213@hsa.is - 470-1450
Sigríður Kristinsdóttir - sigridur@hsa.is - 470-1404


HSA Neskst. Sjúkrah. Röntgen
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka