Umsjónarmaður með íbúaeldhúsum, Dyngja

Um er að ræða fast starf í íbúaeldhúsum á hjúkrunarheimilinu Dyngju.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsmaður sem hefur umsjón með íbúaeldhúsum á hjúkrunarheimilinu Dyngju, þar með talið pantanir. Bera fram mat, aðstoða við máltíðir og frágang og önnur tilfallandi verkefni.

Hæfnikröfur

Reynsla af umönnun æskileg.
Færni í mannlegum samskiptum, samviskusemi, stundvísi og góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 60 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019

Nánari upplýsingar veitir

Ragnhildur Rós Indriðadóttir - rri@hsa.is - 470-3079
Arney Eir Einarsdóttir - arneyeir@hsa.is - 470-3040, 865-1054


HSA Egilsst. Dyngja
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka